bb/flatey038.jpg
Previous | Home | Next
Palli á Haugi, Páll Sigurðsson Auðshaugi í Kjálkafirði (f. 16.03.1906, d. 01.08.1974), fékk lömunarveiki ungur. Hann var á margan hátt eftirminnilegur. Sagt er að hann hafi komið að Sigvalda Kaldalóns lækni sem lá í sólbaði undir vegg á gamla læknisbústaðnum. "Hvað gerir þú á veturna?" spurði Palli. Eitt sinn var hann á leið út í Flatey með Jóni á Deildará sem skaut æðarkollu á leiðinni og bannaði Palla að segja frá því. "Heyrðuð þið nokkuð skot piltar?" var það fyrsta sem Palli sagði þegar þeir komu í land í Flatey.
|